Plast
Endurnýting umbúða úr plastfilmu, stífu plasti, frauðplasti og öðru plasti.
Úrvinnslugjald er lagt á hvert kg af umbúðum úr pappa, pappír og plasti. Gjaldið er lagt á hvort sem umbúðirnar eru einar og sér eða utan um vörur sem fluttar eru til landsins.
Úrvinnslugjaldið er notað til að greiða fyrir meðhöndlun umbúðanna og endurnýtingu eftir að þær hafa þjónað upphaflegum tilgangi sínum.
Gögn fyrir þjónustu- og ráðstöfunaraðila
Ýmis gögn og upplýsingar fyrir þá sem annast þjónustu fyrir Úrvinnslusjóð vegna endurnýtingar umbúða úr plasti
Skilmálar fyrir þjónustu- og ráðstöfunaraðila
Umsóknareyðublöð og samningsform
Greiðslur
Allar upplýsingar um greiðslur Úrvinnslusjóðs eru í skilagreinaformi. Nauðsynlegt er að sækja nýjasta skilagreinform áður en reikningur er gerður svo að verðskrá sé rétt.